


Um verkefnið
Verkið, eftir tónskáldið Írisi Thorarins, er tónlistarsamræða milli tveggja mjög ólíkra hljóðfæra og hljóðheima: kínversks guzheng og víólu. Myndbandið var tekið upp á Korpúlfsstöðum og sýnir lifandi flutning þar sem tónar víólunnar, í höndum Kristínar Þóru Haraldsdóttur, mæta flæðandi laglínum guzhengsins. Íris Ásmundardóttir, dansari og danshöfundur, lyftir flutningnum upp með hreyfingum sínum og túlkun. Patrik Ontkovic sá um myndatöku og myndvinnslu og Owen Hindley um lýsingu og uppsetningu.
Verkið er í framleiðslu KRÓMÍK
A Duet of Distant Strings

KRÓMÍK KYNNIR MEÐ STOLTI



SKJÁLFTINN
KRÓMÍK nýtur þeirra forréttinda að framleiða Skjálftann í þriðja sinn. Skjálftinn er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi sem fór fram í fyrsta sinn í maí 2021. Árið 2026 verður lagt í mikla þróunarvinnu og undirbúning fyrir næstu keppni, sem haldin verður í sjötta sinn árið 2027
.jpg)



BÓKA FYRIR VIÐBURÐI
SÖNGUR, ATRIÐI, VEISLUSTÝRING, SKEMMTUN, TÓNLISTARATRIÐI, UTANUMHALD, VEISLUHÖNNUN O.FL.
KRÓMÍK býður upp á fjölbreytta þjónustu og skapar réttu stemninguna


SAMFÉLAG
LISTAMANNA
Listafólk KRÓMÍK kemur úr öllum áttum og endurspeglar ólíka strauma í menningarlífinu. Þetta lifandi mósaík skapandi einstaklinga er drifkrafturinn í öllu því sem við gerum.
Hjá KRÓMÍK mætast ólíkar stefnur þar sem listamenn okkar ekki bara skapa, heldur leiða þeir framleiðslu, verkefnastýringu og listræna framkvæmd frá upphafi til enda.
VERKEFNIN OKKAR
SKJÁFTINN
SIF INTERIOR
I HEILSA
MISTAKAKASTIÐ
SKYNJUN HLJÓÐVERK
KRÓMÍK STOFNAÐ
KRÓMÍK var stofnað árið 2025 og sérhæfir sig í heildarutanumhaldi og framleiðslu fyrir listir, menningu og skapandi greinar. Starfsemi okkar byggir á lifandi mósaíki skapandi einstaklinga með víðtæka reynslu af hönnun, listrænni stjórnun og viðburðastýringu. Með öflugt samstarfsteymi bakhjarla brúar KRÓMÍK bilið á milli stórra hugmynda og hágæða framkvæmdar. Við erum sveigjanlegur vettvangur þar sem ólíkir listamenn og vörumerki mætast. Markmið okkar er að styðja við nýsköpun og fjölbreytileika með því að skapa eftirminnilega upplifun og vandaða sjónræna umgjörð utan um hvert verkefni.




ALLT FRÁ A TIL Ö
KRÓMÍK veitir sérhæfða ráðgjöf og stefnumótun sem hjálpar listafólki, fyrirtækjum og frumkvöðlum að raungera hugmyndir sínar á markvissan hátt. Við deilum af reynslu okkar og þekkingu til að byggja trausta umgjörð utan um verkefni þitt og hámarka árangur þess.
Styrkumsóknir
og fjármögnun
Framleiðsla og frumkvöðlastarf
Kynning
og markaðsmál
Viðskiptaáætlanir og verkáætlanir
RÁÐGJÖF
KRÓMÍK
Skapandi mósaík
Vönduð framkvæmd


















.jpg)


.jpg)












